ÍSLENSKA

18. öldin með Pétri Gunnarssyni

Fjórir heimildaþættir um sögu Íslands á 18. öld skrifaðir af Pétri Gunnarssyni rithöfundi sem jafnframt er sögumaður.

Í þáttunum segir Pétur sögu lands og þjóðar með hliðsjón af ævi nokkurra einstaklinga eins og Árna Magnússonar, Jóns Grunnvíkings, Hannesar Finnssonar og Magnúsar Stephensen.

Á þeim umbrotatímum sem nú ganga yfir á Íslandi er við hæfi að rifja upp átjándu öldina sem vafalaust er sú erfiðasta í íslenskri sögu.

Pétur segir þessa miklu sögu á sinn einstaka hátt í þáttunum sem teknir eru á um hundrað sögustöðum víða um land og í Kaupmannahöfn.

Björn B Björnsson stjórnaði gerð þáttanna.

Tónlistin í þáttunum »
MANNAVEIÐAR KÖLD SLÓÐ NJÁLSSAGA ÁRÁSIN Á GOÐAFOSS
Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun